11.05.1925
Neðri deild: 77. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 83 í D-deild Alþingistíðinda. (3160)

128. mál, seðlaútgáfa og önnur bankalöggjöf

Fjármálaráðherra (JÞ):

Út af ummælum hv. flm. (JakM) um sambandið milli seðlaútgáfunnar og veðlánastarfsemi vil jeg einungis taka það fram, út af því, að það eru þessi tvö mál, sem koma munu fyrir næsta þing, að jeg vildi ekki þar með hafa gefið hv. þm. neitt tilefni til að setja þetta tvent í neitt samband hvað við annað. Jeg skal ekkert um þetta segja, annað en það, að jeg veit ekki til, að slíkt samband eigi sjer stað neinsstaðar í veröldinni.