01.04.1925
Neðri deild: 48. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 577 í D-deild Alþingistíðinda. (3315)

101. mál, sveitarstjórnar, bæjarstjórnar- og fátækralöggjöf

Jón Sigurðsson:

Það hefir orðið samkomulag um það milli mín og hv. 1. þm. Ám. (MT), að jeg taki aftur dagskrártill. mína til síðari umr. Það lítur út fyrir, að miklar umr. ætli að verða um málið, en hinsvegar þarf fjvn. að fara að starfa, og viljum við ekki verða til þess, að tvískifta þurfi þessari umr., og mun jeg því geyma mjer til síðari umr. að svara hv. frsm. (BSt.).