26.02.1925
Efri deild: 16. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1145 í B-deild Alþingistíðinda. (339)
55. mál, nauðasamningar
Frsm. (Eggert Pálsson):
Jeg finn enga ástæðu til að halda langa ræðu um þetta mál, því að öllum háttv. deildarmönnum hlýtur að vera ljós nauðsyn sú, sem á því var að gefa út þessi bráðabirgðalög, sem hjer um ræðir. Og hitt hlýtur líka háttv. deildarmönnum að skiljast, að ekki beri síður nauðsyn til að flýta máli þessu nú, þar eð ekki er hægt að ganga frá nauðsynlegum samningum á milli sparisjóðs Árnessýslu og Landsbankans fyr en bráðabirgðalög þessi hafa verið samþykt formlega af þinginu.