06.03.1925
Neðri deild: 27. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 751 í D-deild Alþingistíðinda. (3424)

73. mál, selaskot á Breiðafirði

Fyrirspyrjandi (Bjarni Jónsson):

Jeg hefi komið fram með þessa fyrirspurn sakir þess, að á síðasta þingi var stjórninni falið með rökstuddri dagskrá að leita álits sýslunefnda Dala- og Snæfellsnessýslna um þetta mál. Þar sem jeg hefi ekkert um þetta heyrt síðan, vildi jeg óska, að hæstv. stjóra lýsti því yfir á þingi nú, hvað hún hefir gert í málinu.