25.03.1925
Neðri deild: 42. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1180 í B-deild Alþingistíðinda. (422)
86. mál, Landhelgissjóður
Forsætisráðherra (JM):
Jeg ætla ekki að fara neitt út í sjálft málið hjer, því þess gerist ekki þörf. En mjer finst viðeigandi um leið og þetta frv. er afgreitt hjeðan að minna hv. deild á það, að sá maður, er átti frumkvæði að stofnun landhelgissjóðsins og fyrstur ljet safna fje í hann, var sjera Sigurður Stefánsson í Vigur. Það er því honum fyrst og fremst að þakka, að við getum nú keypt skip til landhelgisgæslunnar. Vænti jeg einnig, að hv. Ed. verði sömuleiðis mint á þetta, minningu hins mæta manns til maklegs heiðurs.