16.03.1925
Efri deild: 31. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1225 í B-deild Alþingistíðinda. (484)

13. mál, smjörlíki

Forseti (HSteins):

Jeg vil aðeins geta þess, út af umræðum þeim, sem hjer hafa orðið, að ekki kemur til nokkurra mála að draga afgreiðslu þessa máls, og mun jeg sjá um, að það verði tekið á dagskrá að fáum dögum liðnum. Það er hvort sem er ekki svo flókið, að mjög langan tíma þurfi til undirbúnings.