18.03.1925
Efri deild: 33. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1379 í B-deild Alþingistíðinda. (657)
25. mál, heimild fyrir ríkisstjórnina til þess að innheimta ýmsa tolla og gjöld með 25% gengisviðauka
Jóhann Jósefsson:
Hv. 5. landsk. þm. sagði, að sjer þætti leitt vegna okkar tveggja, mín og hv. 2. þm. G.-K. (BK), að við hefðum gengið inn á brtt. hæstv. fjrh. um framlenging á gengisviðauka. Jeg held hann hafi sagt, að við hefðum gert það tilefnislaust. Þetta vildi jeg leiðrjetta og einnig benda honum á það, að hann verður að teljast tæpast bær um að dæma um þau tilefni, þar sem hann var fjarverandi við 2. umr. málsins, og heyrði því ekki þau rök, er færð voru fyrir nauðsyn þessarar framlengingar. Það liggur í augum uppi, að þörf ríkisins fyrir þetta fje verður ekki lokið 1926, og jeg sje ekki, hvað ætti að hamla þessari framlengingu, þegar ljós rök hafa verið leidd að því, að hennar er þörf. Jeg fæ ekki sjeð að það hefði minstu þýðingu, því að það yrði þá að gera það á þinginu 1926. Það eina, sem ynnist, yrði það, að sú stjórn, sem á að gera fjárhagsáætlun fyrir 1927, vissi ekki, hvort hún mætti gera ráð fyrir þessum tekjuauka áfram.
Hv. þm. talaði um nefskatt. Það má að vísu kalla alla skatta nefskatta, en málvenja er það ekki um slíkan skatt, er hjer ræðir um. Hv. þm. hlýtur því að hafa átt við eitthvað annað.
Það var við nánari athugun og að gefnu tilefni, sem við fjellumst á brtt.
Það mun sýna sig, að tekjur ríkissjóðs verða minni af atvinnuvegum 1925 en árið sem leið. Verð á afurðum er lægra, svo miklu sem nemur gengismun að minsta kosti, og þá er það næsta ljóst, að ríkið hefir fulla þörf fyrir þennan tekjuauka, sem sum nærliggjandi ríki fá í miklu fyllri mæli frá sínum gjaldendum. Jeg held því, að ekki sje ástæða til fyrir hv. þm. (JJ) að láta sjer þykja þetta leitt okkar vegna, mín og hv. 2. þm. G.- K. (BK).