06.03.1925
Efri deild: 24. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1419 í B-deild Alþingistíðinda. (688)

12. mál, fiskifulltrúi á Spáni og Ítalíu

Jónas Jónsson:

Jeg vildi aðeins með örstuttri aths. láta í ljós ánægju mína yfir því, að þessi málaflutningsmaður Gunnars Egilsonar og ágæti samningamaður hefir játað, að þegar þessi maður var áður í þjónustu landsins, myndaðist skuld, sem hann gat ekki borgað á skemri tíma en nærri því mannsaldri. (Atvrh. MG: Jeg var málaflutningsmaður landsverslunar, en ekki Gunnars Egilsonar).