18.04.1925
Neðri deild: 59. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1499 í B-deild Alþingistíðinda. (748)

12. mál, fiskifulltrúi á Spáni og Ítalíu

Atvinnumálaráðherra (MG):

Það er undarlegt, að hv. þm. Str. (TrÞ) skuli nú koma með slíka ræðu og ætla sjer að innleiða eldhúsdag á stjórnina. En út af þessu frv. hefir hann enga ástæðu til þess, því að enn hefir ekki verið breytt staf í frv. Önnur stjfrv. eru hjer ekki til umr.