01.05.1925
Neðri deild: 69. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1589 í B-deild Alþingistíðinda. (791)
75. mál, dócentsembætti við heimspekideild
Frsm. minni hl. (Ásgeir Ásgeirsson):
Á síðasta þingi kom fram frv. um breyting á háskólalögunum, en náði ekki fram að ganga. Aftur á móti var samþykt sú breyting í sambandi við fjárlögin, að fella niður fjárveitingu til málfræðikenslu í háskólanum. Jeg skal játa það, að háskólinn var hart leikinn, er þetta var niður felt, og viðurkenni, að við háskólann er full þörf á kennara í íslenskri málfræði. Minni hluti mentmn. leggur því til, að fjárveitingin, sem niður var feld í fyrra, verði aftur upp tekin í fjárlögin.
Ástæðan til þess, að minni hl. fylgir ekki frv. þessu um stofnun nýs embættis í þessum greinum, er sú, að það væri full þörf á að gera nýja skipun á um kenslu ísl. frða við heimspekideildina. Fræðimenn hafa bent á, að ýms embætti mætti tengja þar við, svo sem þjóðskjalavörð og þjóðminjavörð. Teljum við því ástæðu til, að hæstv. stjórn sjái fyrir því, að háskólaráðið geri ítarlegar tillögur um fullnaðarskipulag á kenslu og rannsókn íslenskra fræða við háskólann, hvernig gera megi deildina sem best úr garði, og þó svo, að ríkissjóður hljóti þar af sem minsta útgjaldaaukning. Má vel vera, að hægt verði að komast af með þá starfsmenn, sem þegar hljóta laun úr ríkissjóði og þeim störfum gegna, sem skylt eiga við þjóðleg fræði. Tillaga þessi hefir komið fram utan þings og ætti öllum að vera kunn. Minni hl. óskar nýrrar skipunar, en svo framarlega sem þetta frv. verður felt, munum við fylgja því, að gamla fjárveitingin verði aftur tekin upp í fjárlögin.