17.02.1925
Neðri deild: 9. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1596 í B-deild Alþingistíðinda. (818)

29. mál, aðflutningsbann á áfengi

Jón Kjartansson:

Jeg vil aðeins taka það fram, út af því, sem háttv. þm. Str. bar á allsherjarnefnd neðri deildar í fyrra, að hún tók málin til afgreiðslu í þeirri röð, sem þau komu til hennar, og alls afgreiddi hún 38 mál. Hún skilaði þessu máli frá sjer, eins og öðrum, og gerði enga tilraun til þess að setjast á það. Hygg jeg því, að ekki sje með rjettu hægt að bera henni á brýn, að hún hafi reynt að setjast á málin.