18.04.1925
Neðri deild: 59. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1629 í B-deild Alþingistíðinda. (844)

29. mál, aðflutningsbann á áfengi

Forsætisráðherra (JM):

Jeg vil taka undir það, sem fyr var sagt, að ekki þarf langar umræður um þetta mál, nje heldur brtt. þær, er fyrir liggja. Mjer virðist, að það sje óhætt að láta nú skeika að sköpuðu um það, hvernig atkvgr. ræðst.