30.04.1926
Neðri deild: 66. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1466 í B-deild Alþingistíðinda. (1039)
99. mál, vörutollur
Jón Baldvinsson:
Við 2. umr. urðu talsverðar almennar umræður um frv. og skattalöggjöfina yfirleitt. Jeg skal játa, að jeg undraðist að heyra rök hæstv. fjrh. (JÞ) og hv. frsm. (BL) fyrir þessari ívilnun í sköttum. Það hefir sem sje komið í ljós hjá þeim báðum, að þeir litu svo á, að komið gæti til mála að þyngja annars skatta á almenningi þegar á næsta ári, jafnvel fyrir þessa ívilnun, sem er sjerstaklega fyrir sjávarútveginn. Ummæli hæstv. ráðherra bentu í þessa átt, þegar hann talaði um gengismálið og afleiðingar þess fyrir atvinnuvegina. Hann talaði þannig, að komið gæti til mála að flytja skattabyrðar yfir á þá, sem hafa hagnað af gengisbreytingunni.
Í sömu átt talaði hv. frsm. fjhn. Hann sagðist jafnvel geta verið með nýjum tollaálögum á næsta þingi. Er það þá greinilegt, að þessi ívilnun, sem er aðallega einum atvinnuvegi til gagns, verður til þess, að almenna tolla verður að hækka á næsta þingi.
Þetta hefir sett mig í vanda um það, hvort jeg ætti að fylgja frv. eða ekki. Jeg skal játa, að það er kolatollurinn, sem er sanngjarnt að fella alveg niður. Af stefnuástæðum þætti mjer einnig rjett, að tollur af kornvöru fjelli alveg niður. En eins og rjettilega hefir verið bent á, er þetta ekki mikill hluti af heildinni, þótt ekki stærri skattur en kornvörutollurinn fjelli niður og mundi skamt draga að minka dýrtíðina í landinu.
Sje svo, að hæstv. fjrh. og hv. frsm. ætlist til þess, að á næsta þingi ætti að koma með nýjar álögur í stað þess, sem nú er ljett af þessum atvinnuvegi, þá tel jeg betra að fresta að samþykkja þær ívilnanir, sem hjer er farið fram á.
Mjer hefði þótt vænt um að heyra frá hæstv. ráðh. og hv. frsm., hvort þetta væri þannig hugsað, að það sje fyrirhugað að þyngja tolla á almenningi vegna þessarar ívilnunar handa útveginum. Vil jeg biðja þá að svara þessu. Við þessa umræðu var rætt töluvert um kaupgjald og hæstv. fjrh. lýsti því yfir, að það mætti fá verkafólk til húsabygginga fyrir 1 krónu á klukkutímann. Jeg mótmælti þessu ekki þá, af því að jeg var því ekki viðbúinn. En síðan hefi jeg spurt mig fyrir um þetta, og hefir enginn, sem jeg hefi talað við, heyrt neitt um það. Það kann auðvitað að vera, að einhverjir menn, sem ekki eru fullvinnufærir, fáist fyrir þetta kaup, en þeir eru auðvitað hreinar undantekningar. Þetta fanst mjer rjett að leiðrjetta hjá hæstv. fjrh., án þess þó, að það skifti neinu verulegu máli.