26.03.1926
Neðri deild: 41. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1557 í B-deild Alþingistíðinda. (1144)

71. mál, slökkvilið á Ísafirði

1144 Frsm. (Jón Kjartansson):

Jeg ætla aðeins að mæla með þessu frv. Nefndin hefir gert á því 2 smábreytingar. Fyrri brtt. rýmkar allmjög ákvæði í frv., og er hún flutt í samráði við hv. flm. (SigurjJ). Hin brtt. er til að flýta fyrir því, að lögin öðlist gildi, og vona jeg, að hv. flm. (SigurjJ) hafi ekkert við það að athuga. Vænti jeg svo, að mál þetta fái greiðan gang í gegnum hv. deild.