29.03.1926
Efri deild: 40. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1623 í B-deild Alþingistíðinda. (1242)

32. mál, bæjargjöld í Vestmannaeyjum

Jóhann Jósefsson:

Jeg get verið þakklátur nefndinni fyrir athugasemdir þær, sem hún hefir gert við frv. Jeg fyrir mitt leyti fellst á þau rök, sem hv. frsm. (EP) hefir talið vera fyrir brtt. allshn., og get við þessa umr. greitt þeim atkvæði. Kæmi það fyrir við athugun milli 2. og 3. umr., að það væri eitthvað, sem þyrfti breytinga við, þá myndi jeg bera mig saman við hv. allshn. um það.