10.04.1926
Neðri deild: 50. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1678 í B-deild Alþingistíðinda. (1323)

48. mál, líkhús

Magnús Jónsson:

Jeg finn mjer skylt að þakka háttv. allshn. fyrir, hve mikla rækt hún hefir lagt við þetta frv., og jeg lýsi því yfir fyrir mína hönd og meðflutningsmanna minna, að báðar brtt. nefndarinnar eru til bóta á frv. Fyrri brtt. er til skýringar á texta frv., og hin er vafalaust til góðra bóta líka, því eins og háttv. frsm. allshn. (JBald) sagði, miðar hún að því, að frv. komi fyr til framkvæmda en ella. Jeg vil því aðeins mæla með því, að háttv. deild afgreiði þetta mál sem allra fyrst.