29.03.1926
Efri deild: 40. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1683 í B-deild Alþingistíðinda. (1348)

80. mál, veiting Sveinbirni Högnasyni embætti á Íslandi

Sigurður Eggerz:

Jeg skal ekki auka umr. Mjer finst full ástæða fyrir nefndina að athuga málið. Það má búast við því, að á eftir komi kandídatar í lögfræði, og þyrfti þá að vita, hvort háskólinn hefir á móti þessu eða ekki, og vil jeg mælast til þess, að nefndin leiti umsagnar háskólaráðsins um þetta.