21.04.1926
Efri deild: 56. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1685 í B-deild Alþingistíðinda. (1354)

80. mál, veiting Sveinbirni Högnasyni embætti á Íslandi

Eggert Pálsson:

Jeg vil aðeins leyfa mjer að grenslast eftir, hvort þetta er rjett hjá hv. frsm. (JJ), að prestar með íslensku prófi geti ekki fengið embætti í öðrum löndum. Jeg veit, að íslenskir prestar þjóna sumstaðar erlendis, en mjer er ekki kunnugt um, hvort þeir þurfa að ljúka sjerstöku prófi til þess að fá slíkar stöður.