21.04.1926
Efri deild: 56. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1686 í B-deild Alþingistíðinda. (1357)

80. mál, veiting Sveinbirni Högnasyni embætti á Íslandi

Sigurður Eggerz:

Jeg stend aðeins upp til þess að þakka hv. nefnd fyrir það, að hún hefir rannsakað þetta mál og fengið umsögn háskólaráðsins, eins og jeg lagði áherslu á við 1. umr., að gera þyrfti. Þó að mjer þyki ekki allskostar viðkunnanlegt að afgreiða þetta með sjerstökum lögum, mun jeg hiklaust greiða því atkvæði, þar sem það er samkvæmt tillögum háskólaráðsins.