26.03.1926
Neðri deild: 41. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1701 í B-deild Alþingistíðinda. (1390)

78. mál, notkun bifreiða

Forsætisráðherra (JM):

Það er síður en svo, að jeg mæli á móti brtt. hv. 2. þm. N.-M, sem hjer liggur fyrir, en jeg vildi leyfa mjer að skjóta því til hv. flm. (ÁJ) að gera lítilsháttar breytingu á henni. Þar stendur nefnilega, að dómsmálaráðherra setji nánari reglur um tryggingarskylduna og um viðurkenningu á tryggingarfjelögum. En þetta mál heyrir undir atvinnumálaráðherra. Þyrfti ekki annað en að laga þetta í prentun.