07.04.1926
Neðri deild: 47. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1704 í B-deild Alþingistíðinda. (1397)

78. mál, notkun bifreiða

Árni Jónsson:

Jeg vil leyfa mjer að þakka hæstv. atvrh. fyrir undirtektir hans í þessu máli. Það hefir ekkert verið rætt um þetta við bifreiðafjelögin, en það þarf ekkert að vera þessu máli til fyrirstöðu, því að þetta er líka trygging fyrir þau. Hvað viðvíkur hækkun á töxtunum, þá held jeg, að þetta geti ekki valdið hækkun að neinum mun.