11.03.1926
Neðri deild: 28. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 212 í C-deild Alþingistíðinda. (2036)

22. mál, skipting Gullbringu- og Kjósarsýslu í tvö kjördæmi

Frsm. minni hl. (Jón Baldvinsson):

Háttv. 2. þingm. G.-K. (ÓTh) sagði, að jeg hefði ekki flutt neina brtt. við frv. En jeg reyndi að sameina tvo hv. þm. um brtt., en þegar jeg gat það ekki, vildi jeg ekki bera fram brtt. Liggur því frv. fyrir í sinni upprunalegu mynd.