01.05.1926
Efri deild: 64. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 215 í C-deild Alþingistíðinda. (2045)

22. mál, skipting Gullbringu- og Kjósarsýslu í tvö kjördæmi

Sigurður Eggerz:

Jeg stend aðeins upp til að gera grein fyrir atkvæði mínu. Jeg sje mjer nefnilega alls ekki fært að neita Hafnarfjarðarkaupstað um sjerstakan þingmann, þar sem hann er orðinn annar stærsti kaupstaður landsins.