12.04.1926
Efri deild: 48. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 280 í C-deild Alþingistíðinda. (2076)
97. mál, kvennaskólinn í Reykjavík
Frsm. meiri hl. (Ingibjörg H. Bjarnason):
Háttv. 3. landsk. (JJ) segir, að jeg hefði sagt það óvart, að nemendur úr efri bekkjum Kvennaskólans í Reykjavík gætu tekið gagnfræðapróf þaðan, ef þörf krefði, með því að auka nokkuð við kensluna í einstaka námsgreinum. Þetta sagði jeg í sambandi við það, sem hv. l. landsk. sagði, að til vandræða horfði með gagnfræðamentun hjer í bæ, ef Mentaskóli Reykjavíkur yrði gerður að samfeldum lærðum skóla. Jeg sagði, að úr hinni brýnu gagnfræðaskólaþörf gæti Kvennaskólinn í Reykjavík hætt að nokkru leyti, án þess að gera þyrfti á honum nokkrar verulegar breytingar, og þetta tek jeg ekki aftur, því jafnframt þeirri fræðslu, sem konum einum hæfir, fá nemendur Kvennaskóla Reykjavíkur mjög staðgóða bóklega fræðslu, sem í mjög fáum og óverulegum atriðum vikur frá algengri gagnfræðamentun.