27.02.1926
Neðri deild: 16. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 379 í C-deild Alþingistíðinda. (2121)
23. mál, fátækralög
Árni Jónsson:
Jeg á sæti í þessari nefnd, og hefir meiri hl. hennar borið fram þessa rökstuddu dagskrá, sem hjer er verið að tala um. Hv. flm. (JBald) gat þess, að hann vildi ekki fara út í neinar lögskýringar á þessu, og skil jeg ekki, hvernig hv. þm. (JBald) gat komist svo að orði, því að þetta frv. er ekki orðið að lögum og ekki líklegt til að verða það á þessu þingi. Hv. flm. (JBald) hjelt fast við þá skýringu, sem hann gaf við 1. umr., að þeta frv. ætti jafnt við þá, sem hefðu fengið sveitarstyrk og stæðu í sveitarskuld innan 60 ára aldurs, og þá, sem hefðu þegið sveitarstyrk eftir að þeir voru orðnir 60 ára. Jeg held líka, að þetta megi skilja þannig, og verður það þess valdandi, að jeg get ekki samþykt frv. Mjer finst það vera tvenns konar tilgangur, sem fram kemur í þessu frv., fyrst sá, að vernda rjettindi þeirra manna, sem fyrir elli sakir verða að leita styrks, en hinn tilgangurinn er sá, að veita svo og svo mörgum mönnum rjettindi, af því að þeir verða 60 ára að aldri, af þeim, sem standa í ógreiddri sveitarskuld. þetta taldi hv. flm. (JBald) frv. til bóta, en mjer finst það ástæðulaust, að farið sje að verðlauna mann, sem altaf hefir verið á sveitinni, eða t. d. mann, sem altaf hefir verið hálfgerður afglapi, fyrir það eitt, að hann verður 60 ára að aldri og elliær í tilbót. Mjer finst það ekki bera vott um sjerstakt ófrjálslyndi, þótt lagst sje á móti slíkri lagasmíð.