24.04.1926
Neðri deild: 61. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 508 í C-deild Alþingistíðinda. (2220)

83. mál, útrýming fjárkláða

Frsm. (Árni Jónsson):

Jeg hefi ekki farið með neinar tilgátur, heldur er það staðreynd, og býst jeg ekki við, að hv. þm. Barð. (HK) snúist hugur. Annars vil jeg ekki gera þetta að meira kappsmáli en orðið er.