05.05.1926
Neðri deild: 70. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 656 í C-deild Alþingistíðinda. (2293)

39. mál, stöðvun á verðgildi íslenskra peninga

Frsm. meiri hl. (Jón Auðunn Jónsson):

Áliti meiri hl. nefndarinnar er skilað, en því er ekki útbýtt. Jeg hjelt ekki, að á því mundi stranda, hvort málið væri tekið fyrir einum klukkutíma fyr eða síðar, en jeg skal ekkert hafa á móti því, ef kvöldfundur verður, að málið haldi áfram þá, því að jeg býst við, að álitið verði tilbúið til útbýtingar innan tveggja stunda.