05.05.1926
Neðri deild: 70. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 656 í C-deild Alþingistíðinda. (2294)

39. mál, stöðvun á verðgildi íslenskra peninga

Tryggvi Þórhallsson:

Jeg vil ekki vera svo einstrengingslegur, að halda fast við kröfu mína um, að málið verði ekki tekið af dagskrá, ef jeg fæ tryggingu fyrir því, að það verði fyrsta mál á dagskrá á næsta fundi. Eftir að hafa heyrt yfirlýsingu hv. frsm. meiri hl. (JAJ) um, að nál. sje að koma, mun jeg því ekki amast við ósk hans.