06.05.1926
Neðri deild: 72. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 744 í C-deild Alþingistíðinda. (2317)

39. mál, stöðvun á verðgildi íslenskra peninga

Fjármálaráðherra (JÞ):

Jeg vil aðeins gera þá leiðrjettingu, að í minni stjórnartíð hefir Íslandsbanka aldrei verið neitað um neitt, sem hann hefir farið fram á í sambandi við gjaldeyrisverslun. Hitt er rjett, að neitað hefir verið tilmælum eins manns úr gengisnefndinni (TrÞ).