06.05.1926
Neðri deild: 72. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 746 í C-deild Alþingistíðinda. (2320)

39. mál, stöðvun á verðgildi íslenskra peninga

Fjármálaráðherra (JÞ):

Jeg hefi þegar lagt skriflegar skýringar frá minni hendi, fyrir hv. frsm. meiri hl. fjhn., og var það rjettur vettvangur. Hins get jeg ekki vænst, að skoðanir mínar falli vel í geð hv. minni hl., og því getur hv. minni hl. heldur ekki vænst þess, að jeg leggi skýringar mínar undir hans dóm.