19.04.1926
Neðri deild: 57. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 873 í C-deild Alþingistíðinda. (2406)

6. mál, lærði skólinn í Reykjavík

Klemens Jónsson:

Jeg verð að taka í sama strenginn og hv. þm. V.-Ísf. (ÁÁ), að jeg álít meiningarlaust að halda atkvgr. áfram. Það er búið að fella helstu ákvæðin úr frv., sem nokkru máli skifta, svo jeg verð að álíta, að frv. sje þegar sjálffallið.