05.05.1926
Neðri deild: 70. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 878 í C-deild Alþingistíðinda. (2422)

6. mál, lærði skólinn í Reykjavík

Tryggvi Þórhallsson:

Jeg vil geta þess í þessu sambandi, að það er af mörgum litið svo á, að þetta mál sje í raun og veru fallið. Þannig lítur aldursforseti þingsins á þetta og ýmsir fleiri, að það sje verið að fara í kring um þingsköpin með því að flytja þessar brtt. fyrir hv. deild.