25.02.1926
Neðri deild: 14. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 841 í B-deild Alþingistíðinda. (243)
17. mál, fjáraukalög 1925
Jón Baldvinsson:
Jeg vil aðeins benda á það, að orð hæstv. fjrh. fjellu á þá leið, að fjvn. hefði viðurkent styrkveitinguna með því að taka upp tillögu um hana, svo jeg hafði fulla ástæðu til þess að ætla, að nefndin hafi gert það af sjálfsdáðum, en ekki eftir beiðni stjórnarinnar. Annars væri fróðlegt að heyra, hvernig í þessu liggur.