29.04.1926
Neðri deild: 65. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 940 í C-deild Alþingistíðinda. (2470)
63. mál, skemmtanaskattur og þjóðleikhús
Frsm. meiri hl. (Árni Jónsson):
Örfá orð. Jeg talaði ekki um hreppapólitík eða hrossakaup. En það var eins og hv. þm. Borgf. (PO) væri stunginn af einhverjum ummælum, líkt og hann vissi upp á sig einhverja skömm í þessu efni. Hv. þm. talaði um það, að jeg hefði gert of mikið úr metnaði manna út um landið í þessu efni, og vil jeg alls ekki lengja umræður með því að ræða um það. En jeg vil algerlega neita því, að jeg hafi verið að hlífa sjerstökum hreppum í mínu kjördæmi með þessu. Jeg gat þess við 1. umr. þessa máls, að jeg myndi vera með því, að þetta lágmark væri sett niður úr 500, ef tiltækilegt þætti. Jeg tel fullkomlega rjettlátt að taka skatt af öllum skemtunum, hvar sem er á landinu, en hinsvegar þótti ekki fært að færa lágmarkið neðar en í 500, vegna þess að ekki var talið framkvæmanlegt að innheimta skattinn, þar sem fámennast er. Ef hv. þm. hefði sýnt fram á, að það væri í raun og veru framkvæmanlegt, og komið með till. um það, þá skyldi jeg ekki hafa verið síðastur manna til að greiða henni atkv. Jeg hefi enga ástæðu til að halda, að mínir kjósendur í NorðurMúlasýslu myndu kvarta svo þunglega undan þessum skatti.