14.05.1926
Neðri deild: 78. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1124 í C-deild Alþingistíðinda. (2595)

109. mál, landhelgissjóður

Forseti (BSv):

Mjer skildist á hæstv. forsrh. (JM), að hann beindi því til hv. þm. Borgf. (PO), að hann hefði tafið fyrir því, að málið kæmist á dagskrá. Þetta er ekki rjett. Það hefir orðið út undan af hendingu, vegna þess, hve mörg stórmál hafa verið hjer á dagskrá.