08.05.1926
Neðri deild: 74. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1433 í C-deild Alþingistíðinda. (2694)
81. mál, Landsbanki Íslands
Þorleifur Jónsson:
Jeg hefi ekki tekið neinn sjerlegan þátt í þessum umr. að þessu, en nú er komið fram nýtt atriði í þessu máli, sem jeg hafði ekki búist við, og jeg hygg, að komið hafi allmörgum mjög á óvart, það er dagskrártill. hv. þm. N.-Þ. (BSv), hæstv. forseta þessarar deildar, að stofna nú þegar til nýrra kosninga um þetta mál. Þetta kemur allmjög að óvöru, og þó jeg sjálfur t. d. sje á engan hátt mótfallinn nýjum kosningum, ef um það eitt er að ræða, tel jeg það þó talsvert vafaatriði, hvort stofna skuli til þingrofa og nýrra kosninga út af þessu máli, bankamálinu einu saman. Þessvegna mælist jeg til, bæði fyrir sjálfs míns hönd og alls Framsóknarflokksins, sem jeg er formaður fyrir, að hæstv. forseti veiti ca. 10 mínútna fundarhlje til þess að menn geti athugað þessi atriði og ráðið ráðum sínum þeim viðvíkjandi. Þar sem jeg óska, að stórmál þetta gæti orðið afgreitt hjeðan frá deildinni á þessum fundi, vænti jeg, vegna þess, að nýtt atriði er komið fram í málinu, að hæstv. forseti (BSv) veiti oss Framsóknarflokksmönnum þennan umbeðna 10 mínútna frest, til þess að athuga þessa dagskrártillögu.