08.05.1926
Neðri deild: 74. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1435 í C-deild Alþingistíðinda. (2696)

81. mál, Landsbanki Íslands

Fjármálaráðherra (JÞ): Stjórnin í heild sinni hefir auðvitað ekki ennþá haft tækifæri til að taka þessa dagskrártillögu til athugunar, en jeg vil aðeins geta þess, að hjer er um stjórnarfrv. að ræða, sem búið er að samþykkja við tvær umræður í deildinni, og var síðast afgreitt, að mig minnir frá 2. til 3. umr. með 22:5 atkv., og tel jeg fyrir mitt leyti, að stjórnin hafi alls ekki ástæðu til að vera neitt óánægð yfir meðferð þingsins á þessu máli, og sje jeg því ekki ennþá ástæðu til að rjúfa þing þessvegna.