08.05.1926
Neðri deild: 74. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1437 í C-deild Alþingistíðinda. (2702)

81. mál, Landsbanki Íslands

Forseti (BSv):

Hjer hafa komið fram ákveðin tilmæli og áskoranir frá ýmsum háttv. þm. og frá flokkunum í heild sinni, þess efnis, að jeg gæfi frest nokkurn til athugunar þessari dagskrártillögu, og þar sem jeg vil eigi meina deildarmönnum að íhuga hana áður til atkvæða sé gengið, tel jeg rjett að gera fundarhlje. (Ýmsir þm.: Aðeins 5 mínútur).