08.05.1926
Neðri deild: 74. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1442 í C-deild Alþingistíðinda. (2714)

81. mál, Landsbanki Íslands

Jón Baldvinsson:

Jeg tel þann einn frest forsvaranlegan í þessu máli, að nægði til þess að bera það undir þjóðina. Jeg mun því greiða atkv. með dagskránni. En jeg lýsi jafnframt yfir því, að ef þing verður rofið, þá mun jeg berjast fyrir því, að þetta mál verði afgreitt á þeim grundvelli, sem það hvílir nú á. Og jeg er ekkert hræddur við þann bardaga, sem hv. þm. N.-Þ. (BSv) hefir boðað út af því, ef þessari stefnu væri fram haldið.