10.02.1926
Efri deild: 3. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 851 í B-deild Alþingistíðinda. (275)

3. mál, happdrætti og hlutaveltur

Forsætisráðherra (JM):

Jeg viðurkenni, að þetta atriði, sem háttv. 1. þm. G.-K. nefndi, hefir ekki verið haft fyrir augum, er frv. var samið, enda er þetta nýr siður hjer; en jeg álít rjett, að hv. nefnd taki þetta atriði til íhugunar, því jeg hygg, að þetta sje víðast hvar bannað erlendis. (BK: Það er alstaðar bannað nema ljer). Jeg er annars þakklátur hv. fyrirspyrjanda (BK) fyrir að hafa athugað þetta, og jeg vona, að nefnd sú, sem um frv. fjallar, setji ákvæði inn í frv. gegn þessu.