18.02.1926
Efri deild: 8. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 853 í B-deild Alþingistíðinda. (279)

3. mál, happdrætti og hlutaveltur

Forsætisráðherra (JM):

Jeg var ekki kominn nógu snemma til þess að segja fáein orð um þetta mál við 2. umr. þess hjer í hv. deild. En að vísu hafði jeg ekki annað að segja þá en það, sem jeg segi nú. Jeg vil lýsa þakklæti mínu við hv. allshn. fyrir meðferð hennar á þessu frv., og hefi jeg ekkert að athuga við þær breytingar, sem hún hefir á því gert, enda hefir hv. nefnd borið þær fram í samráði við mig.