04.03.1926
Neðri deild: 21. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 63 í D-deild Alþingistíðinda. (2805)
53. mál, tilfærsla á veðrétti ríkissjóðs í togurum
Sigurjón Jónsson:
Mjer hefir virst koma fram dálítill misskilningur hjá sumum hv. þdm. viðvíkjandi upphæð ábyrgðarinnar og nú síðast hjá hv. þm. Borgf. (PO). Jeg skal því leyfa mjer að taka upp aftur nokkur atriði, sem hv. 2. þm. Rang. (KlJ) benti rjettilega á. Eins og hv. frsm. (BL) tók fram, þá mátti samkvæmt heimild þingsins hvíla alt að 700 £ á skipi á undan ábyrgð ríkissjóðs, sem nam 200 þús. kr. á skip. Á hverju skipi mátti þá hvíla alt að 14 þúsund £ eða samtals 28 þúsund £ á tveim skipum. — Nú er um það að ræða, að ríkið ábyrgist 5000 £ fram yfir 20 þús. £, og koma þá ekki til að hvíla á skipunum nema 25 þús. £. Það er því, eins og áður hefir verið tekið fram, ekki um það að ræða að auka ábyrgðina frá því, sem áður var heimilað, heldur þvert á móti. Þetta var alveg, ljóst hjá hv. 2. þm. Rang. (KlJ), og jeg er sannast að segja dálítið undrandi yfir þeim hv. þdm., sem ekki geta skilið þetta. (PO: Þetta er algerlega rangt!). Það segir sig sjálft, að það var engin ívilnun við fjelagið af ríkisins hálfu að heimila ábyrgð á £ 7000 gegn 1. veðrjetti í hverju skipi.