20.04.1926
Neðri deild: 58. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 171 í D-deild Alþingistíðinda. (2884)

88. mál, björgunar- og eftirlitsskipið Þór

Forseti (BSv):

Hjer er fram komin skrifleg brtt. frá hv. 3. þm. Reykv. (JakM) um það, að orðin: „enda leggi bæjarsjóður Vestmannaeyja fram 25 þús. kr. árlega til útgerðar skipsins“ falli burt. Þarf afbrigði frá þingsköpum til þess, að þessi till. megi koma undir atkvæði, og verður það borið upp síðar.