20.04.1926
Neðri deild: 58. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 175 í D-deild Alþingistíðinda. (2889)

88. mál, björgunar- og eftirlitsskipið Þór

Fjármálaráðherra (JÞ):

Jeg vil aðeins taka það fram, að það er ekkert í máli þessu, sem ber það með sjer, að sjútvn. Nd. hafi haft það til meðferðar. En till. ber það aftur á móti með sjer, að hún er borin fram af sjútvn. Ed., og er því ekkert á móti því, að sjútvn. þessarar deildar athugi það. En það eitt, að brtt. eru fram komnar, ætti að vera næg ástæða til þess að vísa málinu til nefndar.