24.04.1926
Neðri deild: 61. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 178 í D-deild Alþingistíðinda. (2894)

88. mál, björgunar- og eftirlitsskipið Þór

Jón Baldvinsson:

Jeg vil aðeins geta þess, að mál þetta hefir verið athugað í sjávarútvegsnefnd, og þar hefir það orðið ofan á að mæla með till. háttv. þm. N.-Ísf. (JAJ).