03.05.1926
Neðri deild: 68. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 222 í D-deild Alþingistíðinda. (2944)

86. mál, rýmkun landhelginnar

Flm. (Pjetur Ottesen):

Jeg fór fram á það við hæstv. forseta, að hann tæki þetta mál á dagskrá nú. Það er að vísu langt síðan tillagan kom fram, en það hafa mörg frv. orðið að ganga fyrir, og þar sem nú eru mörg mál á dagskránni, sem búast má við að allmiklar umræður verði um, þá ætla jeg að geyma til síðari umr. að gera frekari grein fyrir tillögunni.