07.05.1926
Efri deild: 69. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 243 í D-deild Alþingistíðinda. (2959)

86. mál, rýmkun landhelginnar

Sigurður Eggerz:

Jeg vildi leyfa mjer að taka í sama streng og hæstv. forsrh. (JM) og mæla með því, að till. þessi verði samþ. Jeg veit, að það er rjett, sem hæstv. forsrh. sagði, að miklir örðugleikar eru að koma þessu máli fram. Og það er ómögulegt að búast við, að því verði komið fram í bili. En hinsvegar er sjálfsagt að halda málinu vakandi og reyna með þrautseigju að komast sem lengst.