11.05.1926
Neðri deild: 76. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 273 í D-deild Alþingistíðinda. (2999)

113. mál, slysatryggingariðgjald

Flm. (Jón Auðunn Jónsson); Þessi þáltill. er flutt vegna þess, að deildin feldi það frv., sem jeg bar fram til breytingar á slysatryggingarlögunum. Hinsvegar er það svo, að stjórn slysatryggingarsjóðsins telur, að þessi eigi að vera framkvæmd laganna, þar sem hásetar taka hlut eða hundraðsgjald af afla.

Jeg veit, að hv. þm. er málið kunnugt, og ætla því ekki að tefja deildina með lengri framsögu.