11.05.1926
Neðri deild: 76. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 274 í D-deild Alþingistíðinda. (3000)
113. mál, slysatryggingariðgjald
Jón Baldvinsson:
Mjer skilst, að þetta sje það sama og hv. þm. N.-Ísf. (JAJ) flutti hjer á dögunum í frumvarpsformi. Og jeg tel sennilega nokkum vafa á, að till. þessi megi koma til atkv. nú, þar sem efni hennar er falið í frumvarpsformi áður. Þar að auki fer þessi till. fram á annað og meira en hægt er að gera sjer í hugarlund, að stjórnin geti framkvæmt, ef hún ætlar sjer jafnframt að láta ákvæði slysatryggingarlaganna í gildi vera.
Orðalag till. er að vísu dálítið óákveðið. Þetta virðist geta átt við þá, sem taka kaup að nokkru, en hlut að nokkru. Þannig er ástatt um háseta botnvörpuskipanna, sem hafa ákveðið mánaðarkaup, en að auki lifrarhlut. Jafnframt mundi þetta ná til skipstjóra og stýrimanna, þar sem þeir hafa hundraðsgjald af afla. Svo þetta skilst mjer vera alt saman þvert á móti því, sem ákveðið er í lögunum. Það eina, sem ágreiningur er um í slysatryggingarlögunum, er það, hvort ákvæði þar megi skilja þannig, að menn, sem einungis eru upp á hlut, en ekki er goldið kaup öðruvísi, eigi ekki eða megi ekki greiða iðgjald fyrir sig til slysatryggingar.
Þess vegna sýnist mjer, að þessi hv. deild, sem hefir áður felt frv., sem fór fram á alveg það sama, geti ekki heldur samþ. þessa till., nema að komast í ósamræmi við sínar eigin ályktanir. Á því byggi jeg, að slík tillaga sem þessi ætti ekki að koma til atkv.
Mjer þykir leitt, að hæstv. atvrh. (MG) getur ekki verið viðstaddur umræðurnar, því þegar við ræddum um samhljóða frv. á dögunum, vildi hann láta líta svo út, að jeg hefði talað fyrir því í fyrra, að breyta mætti lögum um slysatryggingar með einfaldri þál. Þetta er alveg rjett hjá hæstv. ráðh. En það bygðist á því, að allshn. flutti þá brtt. við 21. gr. frv., er var til meðferðar á þinginu í fyrra, að hægt væri að taka upp nýja flokka tryggingarskylda, þegar stjórn slysatrygginga og ríkisstjórnin sæi sjer fært. Þá mun jeg hafa getið þess, að ekki væri annað en flytja þáltill. um að bæta við nýjum tryggingarflokkum og auka þannig starfssvið laganna, ef landsstjórnin ekki fengist til slíkra breytinga. Þessi till. allshn. var samþ. í Nd., en feld í Ed., sem áleit ekki rjett að rýmka um þetta. Svo að alt þetta tal hæstv. ráðherra (MG) fellur niður sem ástæða gegn mjer um það, að þessi till. megi nú komast að. Því nú er heldur engin heimild til þess í lögunum, að neinu verði breytt með reglugerð, svo sem tillaga allsherjarnefndar í fyrra gerði ráð fyrir. Jeg vil því skora á hv. þingmenn að samþ. ekki þessa till., fyrst og fremst af því, að hún fer beint í bága við það, sem hæstv. stjórn getur gert eftir lögunum, ef þau eiga að standa óbreytt, en ekki síst vegna þeirra skýringa, sem jeg fjekk á frv. á dögunum hjá flm. þess (JAJ), þar sem gert var ráð fyrir, að þetta næði til togaraháseta, af því að þeir fengju lifrarhlut og teldust því til þeirra, er fengju hlut af afla, og bæri því skylda til að greiða tryggingariðgjöld sín sjálfir.
Þessi till. stríðir á móti því, sem búið er að fella nýlega í hv. deild. í öðru lagi stríðir hún á móti því, sem gildir um það, sem stjórnin hefir heimild til að breyta í lögunum með reglugerð. Þessar ástæður gera það að verkum, að jeg álít, að ekki eigi að samþ. þessa till., ef henni annars verður ekki vísað frá.