10.05.1926
Neðri deild: 75. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 292 í D-deild Alþingistíðinda. (3020)

116. mál, strandferðir Esju

Flm. (Þorleifur Jónsson):

Jeg skal ekki gera það að kappsmáli, hvort tillagan fer til nefndar eða ekki, fyrst hv. form. samgmn. (JAJ) lofar afgreiðslu fyrir hádegi á morgun. Að vísu sje jeg þess enga þörf, en vilji hv. deild svo vera láta, þá vænti jeg, að till. fái góða meðferð í nefndinni.